

Umboðsmaður Gianluigi Donnarumma hefur vakið mikla athygli með ummælum sínum um framtíð markvarðarins hjá Manchester City og útilokar ekki endurkomu til Ítalíu.
Í viðtali við ítalska ríkissjónvarpið Rai sagði Enzo Raiola að Donnarumma liði vel hjá City en dyrnar að heimkomu væru ekki lokaðar. „Í dag finnur hann ró hjá Manchester City, bæði innan liðsins og í umhverfinu, og hann kann mjög vel við verkefnið,“ sagði Raiola.
Hann bætti við að Donnarumma væri smám saman að aðlagast ensku deildinni. „Hann sagði mér um daginn í gríni að það væri ævintýri að spila fimm eða sex ár á Englandi, en það var bara grín,“ útskýrði umboðsmaðurinn.
Raiola tók þó skýrt fram að möguleg endurkoma til Ítalíu væri raunhæfur kostur. „Ef tækifæri gefst til að snúa aftur til Ítalíu, þá munum við skoða það,“ sagði hann að lokum.
Ummælin hafa þegar vakið miklar vangaveltur á Ítalíu um framtíð ítalska landsliðsmarkvarðarins.