fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Mesti ólátabelgur enska boltans í tómum vandræðum – Var að koma úr löngu banni og ákvað þá að skalla mann

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjóri Preston, Paul Heckingbottom, hefur fordæmt agaleysi Milutin Osmajic og kallað framkomu hans algjörlega óásættanlega eftir að framherjinn skallaði John Lundstram, leikmann Hull City, í leik liðanna á þriðjudagskvöldið.

Atvikið átti sér stað í uppbótartíma á Deepdale þegar Preston var 3-0 undir í ensku B-deildinni. Osmajic sást fyrst ýta Lundstram frá sér, sem leiddi til þess að leikmenn beggja liða og dómarinn Stephen Martin hlupu að þeim. Skömmu síðar skallaði Osmajic Lundstram beint fyrir framan dómarann, sem brást skjótt við og sýndi honum rauða spjaldið.

Osmajic er nýlega mættur aftur á völlinn eftir að hafa verið í löngu banni fyrir kynþáttaníð.

Osmajic virtist brosa þegar honum var vísað af velli, áður en hann huldi andlit sitt með treyjunni á leið sinni út af. Hann á nú yfir höfði sér sjálfvirkt þriggja leikja bann fyrir ofbeldisfulla framkomu. Atvikið kveikti einnig óeirðir þar sem einn starfsmaður frá hvoru liði var rekinn af velli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“