fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Biður foreldrana að tala við dóttur sína þrátt fyrir OnlyFans – Pabbinn sem er þekktur kallaði hana hóru

433
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kerry Katona hefur gagnrýnt leikkonuna Sammy Winward og fyrrum knattspyrnumanninn, David Dunn, harðlega vegna tveggja ára deilu hennar við barnshafandi dótturina Miu.

Í vikunni kom fram að Mia ætti von á sínu fyrsta barni, en hvorki móðir hennar, Emmerdale-stjarnan Sammy Winward, né faðir hennar, fyrrverandi knattspyrnumaðurinn David Dunn, vissu af meðgöngunni.

Ástæðan er langvarandi ágreiningur innan fjölskyldunnar eftir að Mia hóf að starfa á áskriftarsíðunni OnlyFans.

Kerry Katona, sem sjálf er virk á OnlyFans, steig nú inn í umræðuna og sagði í pistli sínum í að lífið væri of stutt til að slíta samskiptum við barn sitt vegna starfsvals. „Ég held að foreldrar eigi ekki að hætta að tala við börnin sín bara af því þau eru á OnlyFans. Hún er ekki að brjóta lög,“ skrifaði Kerry og bætti við að þó hún myndi verða sár ef eitt af börnum hennar færi þessa leið, myndi hún aldrei loka á þau.

Mia sagði sjálf að hún hefði ekki haft samband við foreldra sína þar sem hún væri viðkvæm á meðgöngu og vildi forðast streitu. Hún sagðist ekki sjá fyrir sér að tala ekki við sitt eigið barn.

Getty Images

Mia hefur áður sagt að faðir hennar hafi kallað hana hóru vegna OnlyFans-ákvörðunarinnar, sem hafi sært hana djúpt.

Hún sér þó ekki eftir ákvörðun sinni, segir hafa átt frábær ár við ferðalög og ljósmyndatökur, en hefur nú hætt störfum á síðunni. Hún greindi áður frá því að hún hefði þénað allt að 17 milljónir króna á mánuði og keypt fasteign í Tulum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“