fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Arsenal vonast til að geta stolið vonarstjörnu af Real Madrid

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 10:30

Victor Valdepenas og David Alaba Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal fylgist grannt með varnarmanninum Victor Valdepenas hjá Real Madrid.

Valdepenas er 19 ára gamall og lék sinn fyrsta leik með aðalliði Real Madrid í síðasta mánuði. Hann er talinn afar efnilegur og sagður eiga bjarta framtíð fyrir sér.

Samkvæmt spænskum miðlum hafa fulltrúar Arsenal fylgst með þróun hans, en fleiri stórfélög í Evrópu eru einnig sögð hafa áhuga á spænska ungliðanum.

Arsenal vill bæta við sig ungum og fjölhæfum varnarmanni, en líklegt er talið að félagið bíði fram á sumargluggann með slíkt skref. Valdepenas er sérstaklega áhugaverður kostur þar sem hann getur bæði leikið í vinstri bakverði og í miðverði.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Real Madrid gegn Alavés í vinstri bakverði og var á vellinum í 78 mínútur. Eftir leikinn skrifuðu liðsfélagar hans á treyjuna, sem hann segist ætla að setja í ramma og hengja upp í herberginu sínu.

„Þetta er draumur, draumur hvers barns,“ sagði Valdepenas við Realmadrid TV. Real Madrid lítur á hann sem mikilvægan framtíðarleikmann, sem gæti gert Arsenal erfitt fyrir að fá hann frá spænska stórveldinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna