fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Van Persie fær á baukinn frá eigin leikmanni – Segir að stjórinn þori ekki að segja þessa hluti við sig

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi framherjinn Robin van Persie, sem lék með Arsenal og Manchester United, hefur verið gagnrýndur harðlega af leikmanni Feyenoord fyrir að vernda ekki sína menn.

Van Persie hefur stýrt Feyenoord síðan í febrúar 2025, en liðið tapaði 4-3 á heimavelli gegn Sparta Rotterdam um helgina. Sonur hans, Shaqueel van Persie, skoraði tvö mörk í leiknum, en það dugði ekki til sigurs og Feyenoord tapaði dýrmætum stigum í baráttunni við PSV á toppi Eredivisie.

Fyrir leikinn gagnrýndi Van Persie miðjumanninn Quinten Timber opinberlega og sagði að það væri „eingöngu knattspyrnuleg ákvörðun“ að hann væri varamaður. Hann bætti við að hann meti leikmenn út frá frammistöðu á æfingum, leikjum og hvort þeir sýni nægan vilja í bæði vörn og sókn.

Timber, sem sagður er vera á förum frá félaginu, svaraði þjálfara sínum eftir leik og sagðist vonsvikinn. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjálfarinn verndar ekki leikmanninn. Hann má hafa skoðun, en segja hana þá beint við mig,“ sagði Timber og bætti við að nú væri mælirinn fullur.

Van Persie svaraði gagnrýninni eftir leik og sagði að hann velji einfaldlega þá leikmenn sem hann telji sýna nægan vilja til að sinna sínum skyldum. Hann viðurkenndi jafnframt að hann væri ekki sáttur við frammistöðu Timber og þess vegna hefði hann valið aðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana