
Ajax er líklega að fá varnarmanninn Oleksandr Zinchenko að láni, en Úkraínumaðurinn er sem stendur á láni hjá Nottingham Forest frá Arsenal.
Zinchenko gekk til liðs við Forest á lokadegi félagaskiptagluggans síðasta sumar, en dvöl hans á City Ground hefur ekki gengið sem skyldi. Hann hefur aðeins verið í byrjunarliði Forest í fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni og fyrir helgi var greint frá því í helstu miðlum að félagið skoðaði að rifta lánssamningnum.
Það hefur þó reynst flóknara en ætlað var, þar sem samningurinn inniheldur ekki ákvæði um að senda Úkraínumanninn fyrr til baka. Arsenal er jafnframt ekki tilbúið að taka Zinchenko aftur strax, enda Lundúnaliðið með fullskipaðan hóp.
Því hefur Forest þurft að finna varnarmanninum nýtt félag og útlit er fyrir að það hafi tekist og að leikmaðurinn fari til Ajax.
Zinchenko, sem er 29 ára gamall, mun yfirgefa Arsenal endanlega í lok tímabilsins þegar samningur hans rennur út.