fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Berast reglulega ábendingar um ferðalög fólks með alþjóðlega vernd aftur til heimalandsins – Fáar afturkallanir vegna slíkra ferða

Jakob Snævar Ólafsson
Laugardaginn 17. janúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útlendingastofnun berast reglulega ábendingar um að fólk með alþjóðlega vernd á Ísland ferðist aftur til heimalanda sinna. Slíkt getur varðað afturköllun verndar. Óljóst virðist hversu algengt og umfangsmikið þetta er í raun og veru eða hvort lítið sé á bak við fullyrðingar um mikla tíðni slíkra ferða en þau tilfelli sem endað hafa með formlegri afturköllun verndar, af þessum orsökum, hafa verið sárafá undanfarin 10 ár.

DV barst nýlega ábending um einstakling sem fullyrt var að hefði fengið alþjóðlega vernd á Íslandi en þrátt fyrir það ferðast aftur til heimalands síns þaðan sem viðkomandi átti að hafa flúið vegna hættu. Einstaklingurinn er með íslenska kennitölu og skráður með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Á samfélagsmiðlum hefur einstaklingurinn birt myndbönd sem hann greinilega tók á Íslandi en einnig myndbönd sem sýna einstaklinginn hitta aðila, sem honum eru greinilega kunnugir, og eru augljóslega tekin upp í heimalandi viðkomandi. Sum myndbandanna frá heimalandinu birti viðkomandi eftir að hann birti myndböndin frá Íslandi. Eflaust er þá mögulegt að draga þá ályktun að þetta bendi til að umræddur einstaklingur hafi ferðast til heimalandsins eftir að hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi.

Myndböndin ein og sér sanna þó lítið í þessum efnum. Til að mynda er vel mögulegt að þau hafi verið tekin nokkru áður en þau voru birt og til að fá staðfestingu á ferðalagi umrædds einstaklings til heimalandsins, eftir að vernd var veitt, er frekari gagna þörf og þar á meðal frá Útlendingastofnun og ljóst þykir að stofnunin sé bundin trúnaði að lögum um þau og sé ekki heimilt að afhenda fjölmiðlum þau.

Ábendingar

DV fór því þá leið að spyrjast fyrir um þessi mál almennt með fyrirspurn til Útlendingastofnunar. Spurt var í fyrsta lagi hvort Útlendingastofnun hafi borist ábendingar um að einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi hafi, eftir að umsókn viðkomandi þess efnis hafi verið samþykkt, ferðast aftur til heimalands síns eða annars lands, þaðan sem viðkomandi átti þá að hafa verið að flýja.

Svar stofnunarinnar var að til hennar berist reglulega ábendingar um slíkt. Því var hins vegar ekki lýst nánar.

DV spurði því næst hvort stofnunin gæti gefið upp hversu mörg slík tilfelli hafi komið inn á borð stofnunarinnar síðan árið 2016 og þá sundurliðað eftir árum og heimalöndum viðkomandi. Stofnunin svaraði þessari spurningu með því að vísa í gögn úr upplýsingakerfum hennar þar sem fram komi að á þessu tímabili hafi alþjóðleg vernd verið afturkölluð níu sinnum vegna þess að einstaklingur hafi sjálfviljugur notfært sér vernd heimalands á ný. Árið 2019 var um ræða tvo einstaklinga frá Írak og tvo frá Pakistan árið 2019. Árið 2020 voru þetta einn einstaklingur frá Afganistan og einn frá Alsír og 2021 var um að ræða tvo frá Írak og einn frá Venesúela.

Fjöldi

Ekki kemur raunar beint fram í svarinu að þessir einstaklingar hafi samþykkt að snúa aftur heim í kjölfar þess að hafa orðið uppvísir að því að ferðast til heimalandanna aftur eftir að hafa fengið alþjóðlega vernd. Það er einnig óljóst hvort það séu einhverjir sem hafa sætt afturköllun og brottvísun, gegn þeirra vilja, vegna slíkra ferðalaga aftur til landsins þaðan sem viðkomandi átti vera að flýja. Það er einnig óljóst hversu margar ábendingar um slíkar ferðir hafa borist Útlendingastofnun og einnig hversu margar þeirra hafa leitt til afturköllunar, hversu margar hafa reynst vera staðlausir stafir, hversu hátt hlutfall ábendinga hefur hvorki tekist að staðfesta né hrekja eða hvort í einhverju tilfellum ferðir viðkomandi hafi talist vera bráðnauðsynlegar til að mynda vegna fjölskyldu viðkomandi.

Reglur

Til að taka af allan vafa spurði DV einnig Útlendingastofnun hvort það sé svo að einstaklingur, sem hefur fengið alþjóðlega vernd á Íslandi, sem ferðist til heimalands síns eða annars lands þar sem viðkomandi var talinn vera í hættu, sé að brjóta gegn skilyrðum þess að fá vernd. Ef svo væri hvaða reglur eða skilyrði nákvæmlega viðkomandi væri þá að brjóta.

Svar Útlendingastofnunar var á þá leið að grundvöllur alþjóðlegrar verndar sé að finna í 37. grein útlendingalaga. Skilyrði til veitingar alþjóðlegrar verndar sé að útlendingur hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimalandi sínu vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og geti ekki eða vilji ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands. Eða ef raunhæf ástæða sé til að ætla að viðkomandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka verði hann sendur aftur til heimalands síns.

Stofnunin segir að af þessu megi sjá að alþjóðleg vernd sé veitt á þeirri forsendu að öryggi flóttamanns sé í hættu í heimalandi. Snúi hann þangað aftur gefi það í skyn að ástandið í heimalandi hafi batnað og að flóttamaðurinn þurfi ekki lengur á alþjóðlegri vernd að halda. Ferðist einstaklingur, sem hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Íslandi, til heimaríkis, geti það því orðið til þess að vernd viðkomandi verði afturkölluð, en stofnunin vísar síðan að öðru leyti í upplýsingar um afturköllun verndar.

Stofnunin segir að heimild til afturköllunar verndar vegna ferðalaga til heimaríkis sé í 48. grein útlendingalaga sem eigi sér stoð í c. lið 1. greinar flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Það að ferðast til heimaríkis leiði þó ekki sjálfkrafa til afturköllunar verndar heldur sé hvert tilfelli skoðað einstaklingsbundið og aðstæður metnar.

Nefna má eitt dæmi um mál af þessu tagi sem varðar umsækjanda um alþjóðlega vernd frá Venesúela en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði fyrr í mánuðinum ríkið af kröfu viðkomandi um að fella úr gildi staðfestingu kærunefndar útlendingamála á ákvörðun Útlendingastofnunar sem synjaði umsókninni. Vildi dómurinn meina að umsækjandanum hefði ekki tekist að sanna fullyrðingar sínar um að hann ætti í verulegri hættu á að verða fyrir ofsóknum glæpahópa í Venesúela og minnti dómurinn einnig á að viðkomandi hefði ferðast til landsins fyrir einu og hálfu ári og komið síðan aftur til Íslands.

Forsenda

Við spurningu DV um hvort það væri rangt ályktað að forsenda þess að fá alþjóðlega vernd sé að viðkomandi sé talinn vera í hættu og geti ekki snúið aftur til heimalands síns eða annars þess lands sem viðkomandi hafi verið að flýja. Stofnunin segir það ekki rangt ályktað en fleira komi til og vísaði að öðru leyti í fyrrgreint svar um reglur og skilyrði fyrir alþjóðlegri vernd.

Að lokum spurði DV Útlendingastofnun hvort ef reglur eða skilyrði væru í gildi um að þau sem fái alþjóðlega vernd fari ekki aftur til heimalandsins, eða annars þess lands sem viðkomandi er að flýja vegna hættu, hvort að væri þá ákveðinn gildistími á þessum reglum og ef þær séu brotnar hvort einhver tiltekin viðurlög væru við því?

Svarið var nokkuð samhljóða fyrrgreindum svörum, að á meðan flóttamaður njóti stöðu flóttamanns samkvæmy ákvæðum 37. greinar útlendingalaga geti ferðalag til heimaríkis orðið til þess að viðkomandi missi stöðu sína sem flóttamaður en hvert tilfelli sé skoðað með einstaklingsbundnum hætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa