
Fyrrum landsliðsmaðurinn Viðar Örn Kjartansson greinir frá því í viðtali við Fótbolta.net að hann hafi glímt við áfengis- og spilafíkn á síðustu árum ferils síns erlendis. Hann segir einmanaleika eftir að fjölskyldan flutti heim til Íslands hafa haft mikil áhrif.
„Ég var orðinn einn úti, lífið varð minna spennandi og það þróaðist út í gambla og meiri drykkju. Ég missti svolítið stjórnina á tilverunni,“ segir Viðar.
Hann viðurkennir að síðustu tvö árin erlendis hafi hann ekki hagað sér eins og atvinnumanni sæmi, þó án þess að lenda í agabönnum. „Ég var andlega þungur og ekki líkur sjálfum mér,“ segir hann.
Viðar hefur spilað með KA undanfarin tvö tímabil eftir að hann kom heim en eftir tímabilið í fyrra ákvað hann að leita sér hjálpar. Fór hann í meðferð á Vogi og sækir nú reglulega AA-fundi og fær aðstoð sérfræðinga.
„Punkturinn yfir i-ið var að fara í meðferð. Þetta hefur hjálpað mér gríðarlega mikið.“
Viðar segist nú vera í góðu líkamlegu standi og staðráðinn í að ljúka ferlinum á jákvæðum nótum. „Hausinn er vel skrúfaður á og mig langar að koma með alvöru endurkomu.“
Viðtalið við Fótbolta.net í heild er hér.