
Bruno Fernandes ætlar ekki að yfirgefa Manchester United í janúar, þrátt fyrir vangaveltur um framtíð hans eftir að Ruben Amorim var rekinn sem stjóri liðsins.
Fernandes, sem er 31 árs og fyrirliði United, á aðeins eitt og hálft ár eftir af samningi sínum og hafði alltaf hug á að endurmeta stöðu sína í sumar.
BBC segir að hann sé áfram staðráðinn í að vera áfram hjá félaginu, í bili hið minnsta, þrátt fyrir um óvissu um hver verður stjóri liðsins til frambúðar, en Michael Carrick er tekinn við út leiktíðina.
Portúgalinn hafnaði stóru tilboði frá Al-Hilal síðasta sumar og er áfram sagður á blaði í Sádi-Arabíu. Hann vill þó halda áfram að spila í Evrópu, þó hann fari frá United í sumar.