fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vill vera áfram hjá Liverpool en segir stöðuna flókna

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andy Robertson segist vilja vera áfram hjá Liverpool þó að samningur hans renni út í sumar, en hann viðurkennir að framtíðin sé óljós þar sem hann vilji fá að spila reglulega.

Skotinn, sem er 31 árs, á aðeins fimm mánuði eftir af samningi sínum og hefur átt í viðræðum við forráðamenn félagsins.

„Já, ég vil vera áfram, en þetta er erfið spurning. Við þurfum að sjá hvort það sé möguleiki á áframhaldandi samningi eða hvort aðrir kostir séu í boði. Ég þarf að setjast niður með fjölskyldunni og taka ákvörðun,“ segir Robertson.

Robertson hefur spilað 362 leiki fyrir Liverpool síðan hann kom frá Hull City árið 2017, en hefur aðeins byrjað fjóra leiki í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

„Ég er leikmaður sem vill alltaf vera á vellinum. Ég hef spilað í gegnum meiðsli og þegar ég var langt frá því að vera í toppformi. Núna er hlutverkið mitt öðruvísi.“

Hann staðfesti að sambandið við félagið væri gott. „Ég hef gefið þessu félagi allt í átta og hálft ár og Liverpool hefur komið vel fram við mig. Það er gagnkvæm virðing, við sjáum hvað setur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug