fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fer frá Chelsea eftir misheppnaða dvöl og heldur til liðsins sem hann hafnaði í sumar

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea hyggst rifta lánssamningi Facundo Buonanotte og ryðja þannig brautina fyrir Argentínumanninn til að ganga í raðir Leeds United.

Chelsea tryggði sér Buonanotte á láni frá Brighton á lokadegi sumargluggans en dvölin á Stamford Bridge hefur ekki gengið eftir óskum. Þessi 21 árs gamli sóknarsinnaði miðjumaður hefur aðeins komið við sögu í átta leikjum á tímabilinu og fengið einungis 46 mínútur í úrvalsdeildinni. Hann skoraði eitt mark, gegn Lincoln City í deildabikarnum.

Samkvæmt Fabrizio Romano mun Chelsea nú binda endi á lánssamninginn fyrr og senda leikmanninn aftur til Brighton, áður en hann fer á láni til Leeds. Buonanotte hafnaði Leeds til að ganga í raðir Chelsea en fer þangað nú.

Buonanotte sló snemma í gegn hjá Brighton eftir komu sína 2023 og lék 50 leiki á tveimur tímabilum. Hann hefur hins vegar ekki átt upp á pallborðið síðan Fabian Hurzeler tók við liðinu. Hann lék á láni hjá Leicester í fyrra.

Leeds vonast til að Buonanotte geti styrkt sóknarleikinn í baráttunni um að tryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“