
Það er áfram óvissa um framtíð Marcus Rashford, en tvö ný félög eru nú komin í umræðuna í því samhengi.
Enski sóknarmaðurinn hefur staðið sig vel á láni hjá Barcelona frá Manchester United á þessari leiktíð og ku hann hafa áhuga á að vera áfram í Katalóníu. Endurkoma til United þykir nær ómöguleg.
Börsungar hafa kaupmöguleika upp á 26 milljónir punda næsta sumar en ekki er víst að þeir nýti sér hann. Vill félagið skoða hvort hægt sé að kaupa Rashford á lægri upphæð eða fá hann á láni aftur með kaupskyldu.
Önnur félög fylgjast þó með gangi mála og eru Atletico Madrid og Paris Saint-Germain nefnd til sögunnar í dag.
Hjá Atletico telja menn að Rashford myndi henta fullkomlega inn í kefi Diego Simeone. Þá hefur PSG reglulega verið orðað við leikmanninn en hann ku ekki vera svo spenntur fyrir því að spila í Frakklandi, sem dregur verulega úr líkunum á að hann fari þangað.