

Everton hafa sent formlegt tilboð til tyrkneska félagsins Fenerbahce í marokkóska framherjann Youssef En-Nesyri, sem er 28 ára gamall.
Samkvæmt Fabrizio Romano standa nú yfir viðræður um lánssamning, þar sem Everton myndu fá En-Nesyri að láni með kauprétt að upphæð um 17 milljónir punda.
Enska félagið er á höttunum eftir því að styrkja sóknarlínuna í janúarglugganum og lítur á En-Nesyri sem sterkan kost eftir öfluga frammistöðu hans bæði með landsliði Marokkó og félagsliðum undanfarin ár.
Auk þess er Everton einnig sagt hafa áhuga á framherjanum Callum Wilson, sem er 33 ára. Wilson er nú í viðræðum við West Ham United um að rifta samningi sínum. Ef það gengur eftir gæti Everton reynt að fá hann til liðs við sig án kaupverðs.
Everton eru í harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar og ljóst að félagið ætlar að vera virkt á leikmannamarkaðnum til að styrkja hópinn fyrir seinni hluta tímabilsins.