

Tyrell Malacia gæti enn yfirgefið Manchester United áður en félagaskiptaglugganum lýkur.
Samningur hollenska bakvarðarins rennur út eftir um fimm mánuði og hyggst hann ræða framtíð sína við nýjan knattspyrnustjóra United, Michael Carrick, áður en endanleg ákvörðun verður tekin.
Malacia, sem er 26 ára gamall vinstri bakvörður, hefur vakið nokkra athygli félaga í þessum glugga, en engin þeirra tilboða sem hafa borist hafa heillað hann nægjanlega.

Hann vill fá skýra sýn á hlutverk sitt hjá United áður en hann samþykkir að færa sig um set.
Á yfirstandandi tímabili hefur Malacia aðeins komið einu sinni við sögu, sem varamaður gegn Newcastle.
Hollendingurinn var einnig hluti af svokallaðri „fimm manna sprengjusveit“ Ruben Amorim, leikmönnum sem var gert að mæta á æfingar á öðrum tíma en aðalliðið.
Alejandro Garnacho, Antony, Marcus Rashford og Jadon Sancho fengu allir varanleg eða tímabundin félagaskipti, en Malacia sat eftir.