fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Steinhissa þegar hann uppljóstraði því hver var barnapían – Þessi þekkta kona hefur sterkar tengingar við Ísland

433
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Micah Richards kom samverkamönnum sínum heldur betur á óvart þegar hann greindi frá því að Mel B úr Spice Girls hefði verið barnapían hans í æsku.

Richards, sem er 37 ára og fyrrum leikmaður Manchester City og enska landsliðsins, sagði söguna í hlaðvarpinu The Rest Is Football. Þar sátu með honum Gary Lineker og Alan Shearer, sem voru greinilega slegnir með ótrúlegu frásögninni.

Richards fæddist í Birmingham en ólst upp í Leeds, heimabæ Mel B. Áður en hún sló í gegn á tíunda áratugnum sem „Scary Spice“ í Spice Girls, vann hún sér inn aukapening með því að passa börn, þar á meðal Micah Richards.

Mel B. Mynd/Getty

„Mel B passaði mig þegar ég var yngri,“ sagði Richards. „Fáið hana í þáttinn! Systir mín gerir enn hárið á henni.“

Shearer gat vart trúað þessu og skaut inn. „Má ég bara spyrja… hvað í fjandanum er ég að gera hér?“ Lineker kallaði söguna „ótrúlega“ og Richards bætti við að hann hefði talað við Mel B fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Sagan hefur vakið mikla kátínu og sýnir óvænta tengingu á milli knattspyrnu og poppmenningar. Mel B er Íslendingum vel kunnug en hún var unnusta Fjölnis Þorgeirssonar á árum áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug