fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Talið að Alonso hafi tapað klefanum þegar hann trylltist – Sakaði leikmenn um að haga sér eins og leikskólakrakkar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Xabi Alonso er sagður hafa ásakað leikmenn Real Madrid um að haga sér eins og þeir væru á leikskóla á æfingu fyrr í vetur, atvik sem talið er hafa markað upphaf endaloka hans hjá félaginu.

Samkvæmt spænska blaðinu MARCA „sprakk“ Alonso á æfingu snemma í nóvember, þegar samband hans við leikmannahópinn var þegar komið að þolmörkum. Sambandið á að hafa verið við brotpunkt tveimur mánuðum áður en hann var rekinn, þrátt fyrir að stjörnur á borð við Jude Bellingham og Kylian Mbappé hafi reynt að draga upp mildari mynd eftir á.

Alonso var orðinn pirraður yfir því að leikmenn fylgdu ekki hans taktísku kröfum. Honum tókst aldrei að innleiða það ákafa pressukerfi sem skilaði honum miklum árangri hjá Bayer Leverkusen.

MARCA greinir einnig frá því að umrót um Álvaro Arbeloa, sem síðar tók við starfinu, hafi hafist í búningsklefanum löngu áður en Alonso var rekinn. Arbeloa var þá þjálfari B-liðs Real Madrid og reglulegur gestur á æfingum aðalliðsins.

Leikmenn eru sagðir hafa upplifað taktískar æfingar Alonso sem of krefjandi og kvartað yfir upplýsingaflóði frá þjálfarateyminu. Uppþotið í nóvember á að hafa opnað sár sem aldrei greri.

Alonso var rekinn aðeins sjö mánuðum eftir að hann tók við starfinu og innan við sólarhring eftir 3-2 tap gegn Barcelona í úrslitum spænska ofurbikarsins í Jeddah í Sádi-Arabíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug