fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segist hafa verið hrakinn á brott vegna kynhneigðar sinnar – Vissi af hópspjalli þar sem gert var lítið úr honum

433
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 11:30

Cavallo og unnusti hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Josh Cavallo, fyrsti opinberlega samkynhneigði atvinnumaðurinn í knattspyrnu, hefur sakað fyrrverandi félag sitt, Adelaide United, um fordóma vegna kynhneigðar hans og segir að það hafi verið meginástæðan fyrir brottför hans frá félaginu.

Cavallo kom út í október 2021 og hlaut þá mikinn stuðning víða úr knattspyrnuheiminum. Hann var fyrsti leikmaðurinn til að koma út síðan Justin Fashanu gerði það árið 1990. Þrátt fyrir það segir Ástralinn að staða hans hjá Adelaide hafi versnað í kjölfarið.

Í færslu á Instagram sagði Cavallo að brottför hans hefði ekkert með fótbolta að gera. „Ákvarðanir voru teknar af fólki í valdastöðum sem komu í veg fyrir að ég fengi tækifæri, ekki vegna hæfileika minna heldur vegna þess hvern ég vel að elska,“ skrifaði hann.

Cavallo fullyrði að kynhneigð hans hafi haldið honum á varamannabekknum og jafnframt að hann viti til þess að samherjar hans hafi gert grín að honum og kærasta hans í hópspjalli á samfélagsmiðlum.

Cavallo lék ekki mínútu með liðinu tímabilið 2024-2025 og fór að lokum frá félaginu, fyrst til Peterborough Sports og síðar Stamford AFC. „Nýtt upphaf hefur gert mér kleift að anda á ný,“ segir hann.

Adelaide United hafnar ásökununum alfarið. Félagið segist ætla að halda áfram að skapa öruggt og opið umhverfi fyrir alla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug