

Á mánudag mætti Alfreð Finnbogason til starfa hjá Rosenborg. Í kjölfarið ræddi hann um móttökurnar og verkefnið sem fram undan er.
Alfreð var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg í síðustu viku, stórt verkefni fyrir þennan fyrrum framherja íslenska landsliðsins.
„Ég er mjög stoltur og glaður að vera kominn hingað til Rosenborg og hlakka mikið til fyrstu daganna í Þrándheimi,“ sagði Alfreð. Hann útskýrði jafnframt hvers vegna hann valdi að ganga til liðs við félagið.
„Metnaður Rosenborg og hugmyndafræðin sem félagið vinnur eftir passa mjög vel við minn metnað á ferlinum. Þess vegna fannst mér þetta vera rétti staðurinn fyrir mig og ég hlakka til að vera hluti af þessu verkefni.“
Alfreð sagði fyrstu viðræður hafa átt sér stað í byrjun desember og að tilfinningin hafi orðið æ jákvæðari eftir hvert samtal. „Eftir því sem við fórum nánar í smáatriðin varð ljóst að þetta væri góð samsvörun fyrir báða aðila. Nú er ég afar ánægður með að vera kominn á staðinn.“
Spurður hvað hann geti lagt til Rosenborg sagði Alfreð alþjóðlega reynslu sína skipta miklu máli. „Ég hef spilað á háu stigi í mörgum löndum og í ólíkum búningsklefum. Ég skil sjónarhorn leikmanna vel og það er afar mikilvægt, því leikmennirnir eru kjarninn í Rosenborg.“
Að lokum lagði hann áherslu á skipulag og samvinnu. „Ég er skipulagður einstaklingur og vil vinna markvisst þannig að við tökum góðar ákvarðanir saman. Það er lykillinn að þeim framförum sem við viljum ná.“