

Stuðningsmaður Norwich City lést eftir að hafa hnigið niður á bikarleik liðsins gegn Walsall á sunnudag.
Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að stuðningsmaðurinn, sem var á áttræðisaldri, hafi hnigið niður skömmu eftir lokaflautið á Carrow Road, heimavelli liðsins. Læknateymi, vallarverðir og áhorfendur brugðust hratt við og reyndu að veita aðstoð.
„Allir hjá Norwich City vilja senda innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina stuðningsmannsins,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins.
Lögreglan í Norfolk staðfesti að sjúkraflutningamenn hafi reynt að framkvæma endurlífgun, en maðurinn var úrskurðaður látinn á staðnum. Málið hefur verið sent til réttarlæknis, en ekkert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.