

Misheppnuð tilraun Real Madrid til að tryggja sér helstu ósk Xabi Alonso á félagaskiptamarkaði er sögð hafa dæmt valdatíð hans til að mistakast frá fyrsta degi.
Alonso, sem var rekinn frá Real Madrid í gær, á að hafa gert stjórnendum félagsins ljóst að miðjumaðurinn Martin Zubimendi væri efstur á óskalista hans.
Alonso taldi nauðsynlegt að fá miðjumann sem gæti bæði stjórnað spilinu og leitt ákafa pressu, en sú styrking varð aldrei að veruleika.
Spænska blaðið AS greinir frá því að Real Madrid hafi haft fjárhagslegt bolmagn til að kaupa Zubimendi, sem Arsenal tryggði sér fyrir um 60 milljónir punda frá Real Sociedad. Madrid hafi þó hikstað of lengi.
Zubimendi á að hafa frestað félagaskiptum sínum eftir samtöl við Alonso, en þar sem stjórnendur Real drógu lappirnar ákvað 26 ára miðjumaðurinn að ganga til liðs við Arsenal, tveimur vikum síðar en upphaflega stóð til.
Skortur á stjórn á miðjunni, sem áður var í höndum Toni Kroos og Luka Modric, er talinn lykilástæða þess að Alonso náði aldrei að koma sínum hugmyndum almennilega á framfæri hjá spænska stórliðinu.