

Cristiano Ronaldo vakti athygli fyrir undarlegt athæfi á varamannabekknum þegar Al-Nassr tapaði 3-1 gegn erkifjendunum Al-Hilal í gær.
Ronaldo skoraði í leiknum en var tekinn af velli á 83. mínútu og fylgdist með lokamínútunum af varamannabekknum.
Þegar þriðja mark Al-Hilal var skorað sást hann brosa og gera undarlega hreyfingu með höndinni í átt að myndavélunum. Hefur þetta skapað mikla umræðu og gagnrýni á meðal netverja.
Eftir tapið er Al-Nassr sjö stigum á eftir Al-Hilal eftir 14 umferðir og draumur um titilinn virðist fjarlægur. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og hefur enn ekki unnið leik á árinu.
🚨🚨| CRISTIANO RONALDO AFTER AL HILAL SCORED THEIR THIRD GOAL!!
— CentreGoals. (@centregoals) January 12, 2026