

Liverpool er komið áfram í fjórðu umferð enska bikarsins eftir 4-1 sigur á Barnsley á heimavelli.
Dominik Szoboszlai reið á vaðið og skoraði snemma leiks, markið var glæsilegt frá miðjumanninum frá Ungverjalandi.
Jeremie Frimmpong bætti við marki sem var líka glæstilegt áður en Barnsley lagaði stöðuna eftir hræðileg mistök Dominik Szoboszlai í vörn Liverpool.
Staðan var 2-1 í hálfleik og þrátt fyrir yfirburði Liverpool var liðið í vandræðum með að ganga frá leiknum.
Það tókst hins vegar þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum en þá skoraði Florian Wirtz. Í uppbótartíma bætti Hugo Ekiteke við fjórða markinu. 4-1 sigur staðreynd og Liverpool mætir Brighton í næst umferð.