

Diletta Leotta vakti mikla athygli þegar hún stýrði útsendingu DAZN frá stórleik Inter Mílanó og Napoli í ítölsku A-deildinni. Leotta, sem er einn þekktasti íþróttafréttamaður Ítalíu, deildi myndbandi á Instagram-síðu sinni fyrir leikinn þar sem hún kynnti viðureignina klædd glæsilegum, svörtum síðerma bol með gylltum smáatriðum að framan.
Leotta hefur vakið athygli undanfarið en klæðaburður hennar í barnaafmæli vakti furðu á dögunum.

Hún birtist síðar á mynd sem Massimo Ambrosini, fyrrverandi landsliðsmaður Ítalíu og AC Milan-goðsögn, deildi af sérfræðingateyminu í stúdíóinu. Með þeim voru blaðamaðurinn Andrea Marinozzi og Ciro Ferrara, sem lék á sínum tíma fyrir Napoli, Juventus og ítalska landsliðið.
Leikurinn sjálfur stóð undir væntingum og lauk með 2–2 jafntefli eftir fjöruga baráttu.

Utan vallar er Leotta eiginkona markvarðarins Loris Karius. Þau hófu samband sitt árið 2022, eignuðust dóttur ári síðar og gengu í hjónaband 2024. Karius leikur nú með Schalke í Þýskalandi, á meðan Leotta starfar á Ítalíu.