
Arsenal fylgist grannt með stöðu Tino Livramento hjá Newcastle og íhugar að reyna við hann í sumar. The Sun greinir frá, en Manchester City er einnig á eftir leikmanninum eftir því sem fram kemur þar.
Bakvörðurinn á tvö og hálft ár eftir af samningi sínum við Newcastle og miðar viðræðum um endurnýjun lítið áfram. Hann var einnig orðaður frá félaginu í fyrra. Þá var talað um 60 milljóna punda verðmiða.
Livramento getur leyst stöðu bæði hægri og vinstri bakvarðar. Það heillar Mikel Arteta, stjóra Arsenal, mikið, en hann leggur mikla áherslu á samkeppni og breidd í öftustu línu.
City hefur þó haft augastað á hinum 23 ára gamla Livramento í nokkurn tíma, en hann gekk í raðir Newcastle frá Southampton á 30 milljónir punda sumarið 2023.