
Manchester United þurfti að gefa út opinbera yfirlýsingu seint í gærkvöldi eftir að X-aðgangur fyrirliðans Bruno Fernandes var hakkaður og þar birtist röð furðulegra færslna.
Þetta var aðeins nokkrum klukkustundum eftir að United datt úr leik í enska bikarnum með 2-1 tapi gegn Brighton á Old Trafford. Þar með á liðið ekki möguleika á titli á þessari leiktíð.
Meðal færslna var fullyrðing um að hann væri að ganga til liðs við Macclesfield, sem vann Crystal Palace óvænt á laugardag, en einnig var kallað eftir því að losna við INEOS, félag Jim Ratcliffe, hlutaeiganda í United.
Þá birtust einnig klámfengnar og dónalegar færslur sem beindust að ýmsum þekktum einstaklingum innan og utan íþróttaheimsins.
United greip inn í skömmu eftir klukkan 23:30 með yfirlýsingu. „X-aðgangur Bruno Fernandes hefur verið hakkaður. Stuðningsmenn ættu ekki að svara skilaboðum eða bregðast við færslum.“
Allar færslur hafa síðan verið fjarlægðar.