

David Beckham mun hafa reynt að rétta út sáttahönd til elsta sonar síns, Brooklyn, en þeirri tilraun var hafnað samstundis, samkvæmt umfjöllun breskra fjölmiðla.
Brooklyn, sem er 26 ára, hefur verið mikið í fréttum vegna fjölskylduerja undanfarna mánuði. Hann og eiginkona hans, bandaríska leikkonan Nicola Peltz, mættu meðal annars ekki í 50 ára afmæli David Beckham í London í maí, sem hratt af stað þrálátum sögum um ósætti.
Samkvæmt TMZ tengist ágreiningurinn að hluta Kim Turnbull, fyrirsætu og plötusnúði, sem er kærasta Romeo, yngri bróður Brooklyn. Brooklyn ku hafa ákveðið að forðast fjölskyldusamkomur þar sem Turnbull er viðstödd, þó að aðrar fréttir bendi til þess að málið tengist frekar óánægju Peltz.
The Sun greinir nú frá því að David hafi boðið Brooklyn og Peltz að fagna með sér riddarakrossinum sem hann hlaut í nóvember, en Beckham hlaut þann mikla heiður í nýársorðuveitingum konungsins fyrir árið 2026.
Brooklyn túlkaði boðið þó sem enn eina tilraun foreldra sinna til að láta hlutina líta betur út opinberlega og hafnaði því. Að sögn heimildamanna í kringum David vildi hann einfaldlega hafa son sinn við hlið sér á einum stærsta degi ævi sinnar.
Brooklyn eyddi jólunum með fjölskyldu Peltz í Flórída og hafnaði því að vera í kringum sína fjölskyldu yfir hátíðarnar.