

Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson, sem stýra hlaðvarpinu og vefsíðunni Handkastið, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is og hituðu upp fyrir EM í handbolta í þessum mánuði.
Arnar og Styrmir voru sáttir með íslenska hópinn fyrir mótið en segja að spurningar gætu vaknað þegar hópur er valinn á leikdegi.
„Við erum alveg sáttir við hópinn, en svo þegar Snorri fer að velja 16 menn á leikskýrslu, þá höfum við alveg getað gagnrýnt það,“ sagði Arnar.
„Haukur Þrastarson hefur alveg verið að sitja uppi í stúku á meðan Einar Þorsteinn hefur verið á bekknum.
Að gagnrýna 18-19 manna hóp er svolítið erfitt, en hlustið á Séffann í Handkastinu þegar 16 manna hópurinn verður valinn. Það verður áhugavert að sjá hvað hann gerir þá,“ sagði hann enn fremur léttur.
Þátturinn í heild er í spilaranum.