

Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson, sem stýra hlaðvarpinu og vefsíðunni Handkastið, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is og hituðu upp fyrir EM í handbolta í þessum mánuði.
Íslenska liðið er á fullu í undirbúningi sínum og eins og alltaf bindur þjóðin miklar vonir við strákana.
„Mér fannst þetta líta vel út, það er létt yfir hópnum. Ég hef samt alveg áhyggjur, það hafa orðið forföll, Þorsteinn Leó er ekki klár og svo mætir Donni bara heim mökkmeiddur að því er virðist án þess að segja kóngi né prest frá því,“ sagði Styrmir.
„Við erum frekar einsleitir. Ómar er léttur og fimur, Gísli, við erum með rosalega lítið lið. Svo ég hef pínu áhyggjur af því að þegar við mætum stórum þjóðum eins og Króötum og Ungverjum að við séum að fara að lenda á vegg, bókstaflega.
Ég hef áhyggjur af því að við eigum engan svona jóker, sem getur hoppað upp af ellefu metrum og plaffað á markið.“
Þátturinn í heild er í spilaranum.