fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ótrúlegt að ekki fór verr þegar frægur maður og börn hans lentu í háska við ströndina – Sjón er sögu ríkari

433
Föstudaginn 9. janúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi leikmaður Manchester City, Martin Demichelis, og börn hans lentu í lífshættulegum aðstæðum í sjónum í Úrúgvæ um áramótin og þurftu aðstoð brimbrettamanna til að komast heilu og höldnu í land.

Sterkir straumar báru Demichelis og börn hans, Bastian (16), Lolu (12) og Emmu (8), auk frænku hans, Camilu, út frá ströndinni. Myndefni af björguninni hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum í Argentínu og Úrúgvæ, og segja menn að kraftaverk sé að enginn hafi farist.

Brimbrettamenn brugðust skjótt við köllum eftir aðstoð. Á upptökum má sjá börnin halda sér í brimbretti á meðan þau eru dregin í átt að landi. Þegar hópurinn náði loks í land brutust út fagnaðarlæti frá fólki á ströndinni.

„Þetta er algjört kraftaverk. Þetta er mjög hættulegt svæði, sjórinn er djúpur og straumarnir gríðarlega sterkir,“ var haft eftir úrúgvæska blaðamanninum Gustavo Descalzi.

Atvikið átti sér stað 31. desember en fréttir af því komu fyrst fram nú á dögunum. Demichelis hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“