fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Hótaði að nauðga karlmanni í endaþarm og barði annan með billjardkjuða vegna húðlitar

Ritstjórn DV
Laugardaginn 3. janúar 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot, hótanir, líkamsárás sem og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dómur féll í málinu þann 22. desember í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Maðurinn, Pétur Ómar Pétursson, var sakaður um að hafa þann 31. ágúst árið 2023 klipið annan karlmann endurtekið í síðuna, reynt að fá hann til að taka utan um sig og svo hótað því ítrekað að taka manninn með valdi og hafa mök við hann í endaþarm. Eins hótaði Pétur því að lemja viðkomandi.

Þann 16. júlí 2024 mun Pétur svo hafa veist að ofbeldi að öðrum manni, skallað hann í höfuðið og slegið hann með billjardkjuða í kviðinn. Kjuðinn brotnaði í átökunum. Pétur mun svo hafa lamið manninn með krepptum hnefa í andlitið svo brotaþolinn féll í gólfið. Því næst sló Pétur hann með kjuðanum í bakið þar sem brotaþoli lá varnarlaus á gólfinu. Ofbeldið mátti rekja til þjóðernisuppruna og litarháttar brotaþola.

Loks var Pétur ákærður fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot en hann hafði ítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og eins fundust fíkniefni á honum í tvígang, annars vegar rúmlega 17 grömm af amfetamíni og hins vegar tæp 2 grömm af kókaíni.

Pétur játaði skýlaust sök í málinu og horfði það honum til málsbóta. Hann hafði þó áður verið sviptur ökuréttindum vegna umferðar- og fíkniefnalagabrota og hefði ekki átt rétt á að fá ökuréttindi að nýju fyrr en um mitt ár 2030. Ákæruvaldið krafðist þess að nú yrði hann sviptur ökuréttindum til sex ára frá þeim tíma er síðasta svipting rynni út, en dómara í málinu þótti of íþyngjandi að Pétur gæti aðeins fengið réttindin að nýju árið 2026. Hann var því sviptur ökuréttindum ævilangt frá uppkvaðningu dómsins núna 22. desember, en hægt er að sækja um endurveitingu ökuréttinda 5 árum eftir ævilanga sviptingu. Þar með getur Pétur fengið réttindin að nýju í lok árs 2030. Pétur þarf eins að greiða þolandanum sem hann hótaði að nauðga 400 þúsund krónur í miskabætur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn