

María Rut gerir þetta að umtalsefni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Tilefni greinarinnar er skýrsla rannsóknarnefndar vegna snjóflóðsins í Súðavík og segir María Rut að hún hafi skiljanlega kveikt umræðu um hvort nauðsynlegt sé að rannsaka aðra atburði með sambærilegum hætti.
„Við vitum að við Íslendingar erum sterkir í miðju almannavarnarástandi. En það verður hins vegar að viðurkennast að við erum ekki sérlega góð í eftirfylgninni og að hlúa að fólkinu okkar eftir að áfall á sér stað,“ segir María í greininni og bendir á að það sé hluti af lífinu á Íslandi að upplifa jarðhræringar, eldgos, skriðuföll og snjóflóð.
„Það munu í framtíðinni koma upp aðstæður þar sem almannavarnarástand ríkir og manntjón getur orðið. Þess vegna skiptir máli að til séu skýrir verkferlar um það hvernig unnið er úr áföllunum í kjölfar atburðar. Hvernig við lærum af þeim og gerum betur næst. Tilfinningin sem alltof oft situr eftir í þessum samfélögum er sú að kastljósinu sé beint að þeim á meðan hættuástandið ríkir en um leið og það líður hjá fer kastljósið annað. Og fólkið sem situr eftir gleymist,“ segir hún.
Á Alþingi liggur fyrir frumvarp dómsmálaráðherra um ný heildarlög um almannavarnir. María bendir á að heimurinn sem við lifum í hafi breyst og við búum meðal annars við fjölþátta ógnir sem hefðu talist fjarstæðukenndar fyrir fáeinum árum.
„Við erum háð raforku og tengingu við umheiminn. Allt eru þetta kerfi sem geta fallið hratt ef þau eru ekki varin. Því er sterk löggjöf sem undirstrikar ógnir nútímans brýnt skref.“
María las færslu frá Jóni Svanberg Hjartarsyni, framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar, fyrir skemmstu en í henni benti hann á að leið til að tryggja rannsóknarrýni í kjölfar mannskaða eða meiriháttar tjóns af völdum náttúruhamfara.
„Hann leggur til að í frumvarpinu umrædda komi nýtt ákvæði um rannsóknarnefnd sem virkist sjálfkrafa ef mannskaði hlýst af náttúruhamförum eða eignatjón verður stórfellt. Líkt og rannsóknarnefnd samgönguslysa sem við höfum góða reynslu af.“
María segist styðja þessa tillögu heilshugar og ætlar að beita sér fyrir því að fylgja henni eftir á Alþingi með breytingartillögu þar um.
„Það má ekki vera fálmkennt hvaða atvik eru rýnd og rannsökuð. Það grefur undan trausti og býr til sár í samfélaginu okkar sem eru óþörf. Við verðum að hverfa frá þeirri braut að setja fólk í sárum í þá stöðu að þurfa að berjast árum saman fyrir því að fá fram hlutlausa rannsókn í kjölfar hörmunga. Langbesta leiðin er að lögfesta rannsókn sem eðlilegan feril almannavarna, að rýna aðdraganda, viðbragðið og eftirfylgnina. Það er að mínu mati rétta leiðin áfram.”