fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sauð upp úr í anddyri hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ

Ritstjórn DV
Mánudaginn 22. desember 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.

Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi, að kvöldi laugardagsins 31. ágúst 2024, í anddyri ónefndrar hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ veist með ofbeldi að öðrum manni og slegið hann í andlitið. Afleiðingarnar voru þær að maðurinn hlaut nefbrot og opið sár á höfði.

Fórnarlamb árásarinnar gerði kröfu um að fá skaða- og miskabætur samtals að fjárhæð 1.890 þúsund krónur. Á það féllst dómari ekki og var árásarmanninum gert að greiða honum 550 þúsund krónur og samtals 380 þúsund í máls- og sakarkostnað.

Árásarmaðurinn játaði sök fyrir dómi en hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“