fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Gluggi kom af stað nágrannaerjum í Garðabæ – Bærinn skammaður fyrir vinnubrögð sín

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 12. desember 2025 10:00

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru húseiganda í Garðabæ sem krafðist þess að gluggi og hurð á vesturhlið bílskúrs á lóð hússins við hliðina yrðu fjarlægð auk þess sem sorp­geymsla yrði staðsett í samræmi við grenndarkynningargögn. Vildi hinn ósátti eigandi meina að upphaflegum aðaluppdráttum hafi verið breytt án hans vitundar og kærði hann einnig samþykki byggingarfulltrúa Garðabæjar fyrir því. Sagði hann að upphaflega hefði ekki verið kynnt fyrir honum að gluggi yrði á þessari hlið, sem snýr að hans húsi, skúrsins. Þrátt fyrir að hafa ekki orðið við kröfum kærandans gerði nefndin ýmsar athugasemdir við málsmeðferð Garðabæjar í málinu og sagði hana að hluta vera ámælisverða.

Í apríl 2023 var sótt um leyfi til að byggja umræddan bílskúr, stækka anddyri einbýlishússins á lóðinni og tengja það við bílskúrinn. Leyfisumsóknin og aðaluppdrættir voru grenndarkynntir meðal annars fyrir hinum ósátta nágranna. Uppdrættirnir voru samþykktir í september 2024 og í október það ár gaf byggingarfulltrúi út byggingarleyfi.

Í ágúst á þessu ári sneri hinn ósátti eigandi sér til Garðabæjar og nefndi nokkur atriði sem hann sagði ekki vera í samræmi við þá uppdrætti sem hefðu verið grenndarkynntir. Þar á meðal að gluggi væri ráðgerður á vesturhlið bílskúrsins. Fór hann fram á að byggingarfulltrúi myndi beita sér í málinu en svarið sem eigandinn fékk var að hann yrði að senda formlegt erindi.

Stöðvun

Maki eigandans sendi erindi í október 2025 og fór fram á það við byggingarfulltrúa Garðabæjar að hann myndi beita þvingunarúrræðum og stöðva framkvæmdir vegna bílskúrsins sem ekki væri verið að byggja samkvæmt samþykktum uppdrætti. Sama dag fór byggingarfulltrúi á staðinn og ræddi við eigandann og maka hans um málið. Næsta dag sendi makinn annað erindi til byggingarfulltrúa þar sem fram kom að þau gerðu ekki athugasemd við staðsetningu bílskúrsins, en hins vegar gætu þau ekki fallist á að dyr og gluggi væru á vesturhlið skúrsins.

Hálfum mánuði áður hafði byggingarfulltrúi samþykkt uppfærða aðaluppdrætti vegna framkvæmdanna. Í breytingunum fólst meðal annars að gert var ráð fyrir dyrum og glugga á vesturhlið bílskúrsins ásamt salerni og lokuðu geymslurými.

Í kæru hins ósátta eiganda kom fram að verulegur munur væri á grenndarkynntum og sam­þykktum uppdráttum og þeim vinnuteikningum sem nágranninn hafi unnið eftir. Kærandinn sagði bílskúrinn mjög nálægt sínu húsi og myndi stór gluggi á vesturhlið hans leiða til þess að mikil innsýn og ljósmengun bærist inn í stofu hússins hans og borðstofu þess. Gönguhurð myndi skapa umferð, umgang og ónæði. Ekki yrði hægt að njóta útivistar austan við húsið.

Vildi kærandinn meina að bílskúrar í Garðabæ væru almennt hvorki með gluggum né gönguhurð á þeirri langhlið sem snúi að nágrannalóð.

Frávísun

Garðabær krafðist þess að kærunni yrði vísað frá þar sem ekki lægi fyrir nein kæranleg stjórnvaldsákvörðun í málinu. Kærandinn væri að krefjast að þvingunarúrræðum yrði beitt og það væri á valdi byggingarfulltrúa að ákveða hvort orðið yrði við því ekki nefndarinnar.

Nágranni kærandans, sá aðili sem stóð fyrir framkvæmdunum, tók undir að kærunni ætti að vísa frá þar sem frestur til að kæra byggingarleyfi vegna framkvæmdanna væri löngu liðinn. Þar að auki væri ekki til staðar kæranleg ákvörðun og fullyrti hann að framkvæmdirnar væru að öllu leyti í samræmi við yfirfarna og samþykkta aðal- og séruppdrætti, byggingar- og verklýsingar og gildandi lög og reglugerðir á sviði skipulags- og byggingarmála.

Kærandinn ítrekaði hins vegar að hann væri ekki að kæra byggingarleyfið heldur framkvæmdirnar sem væru í ósamræmi við grenndar­kynningu. Aðaluppdrættir með hinum verulegu frávikum frá grenndarkynntum gögnum hafi verið samþykktar af byggingarfulltrúa 17. september 2025, en teikningar væru hins vegar dag­settar 3. apríl 2023. Það væri blekkjandi og ef til vill hafi það verið tilgangurinn.

Ekki hægt að kæra

Garðabær svaraði þessu þannig að ákvörðun byggingar­fulltrúa frá 17. september 2025 að samþykkja byggingaráform með nýjum aðaluppdráttum væri ekki kæranleg ákvörðun. Í bænum fari bæjarráð með vald byggingarnefndar sem sett sé með heimild í lögum um mannvirki. Samkvæmt staðfestri og birtri samþykkt um afgreiðslur byggingarnefndar í Garðabæ sé samþykkt byggingar­fulltrúa á byggingarleyfi háð því skilyrði að bæjarráð hafi samþykkt hana. Samþykki bæjarráðs liggi ekki fyrir og því sé ekki um kæranlega ákvörðun að ræða.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að þegar hinn ósátti eigandi hafi upphaflega haft samband við bæjaryfirvöld hafi hann ekki fengið svör um hvers vegna framkvæmdirnar væru ekki í samræmi við grenndarkynnt gögn. Hann hafi þá fengið leiðbeiningar um að hann gæti kært byggingarleyfið. Nefndin segist verða að setja út á þessar leiðbeiningar. Eigandinn hafi ekki verið að gera athugasemdirvið útgefið byggingarleyfi heldur að benda á að framkvæmdir væru ekki í samræmi við þá uppdrætti sem höfðu verið grenndarkynntir fyrir honum. Eigandinn hefði heldur ekki verið að krefjast þess að byggingarleyfið yrði afturkallað heldur að byggingarfulltrúi myndi beita sér vegna þess sem hann væri að gera athugasemd við.

Ámælisvert

Nefndin segir ámælisvert af hálfu byggingarfulltrúa Garðabæjar að hafa í bréfi 19. september 2025 ekki upplýst kærandann um að tveimur dögum áður hafi verið samþykktir breyttir aðaluppdrætti í ljósi þess að það varðaði bæði hagsmuni kærandans og þann grundvöll sem erindi hans hvíldi á. Samt sé í bréfi byggingarfulltrúa ekki tekin nein ákvörðun sem kæranleg sé til úrskurðar­nefndarinnar, svo sem að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða. Verði þar með að vísa þeim hluta kærunnar frá.

Samþykkt byggingarfulltrúa á breyttum aðaluppdráttum hafi heldur ekki verið staðfest í bæjarráði Garðabæjar og þar sem lokaákvörðun liggi því ekki fyrir í málinu verði að vísa því sem eftir standi af kærunni frá.

Nenfdin mælist til þess að lokum að upphaflegt erindi hins ósátta eiganda verði tekið til meðferðar hjá byggingarfulltrúa Garðabæjar og hann verði þá að líta til þess að bæjarráð hafi ekki samþykkt breytta aðaluppdrætti og raunar heldur ekki þá upphaflegu sem byggingarfulltrúi hafi samþykkt í september 2024.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning
Fréttir
Í gær

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju