

Svona hefst bréf 34 ára karlmanns til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre.
„Ég hef alltaf verið hrifinn af háum hælum, alveg frá því að ég var unglingur hef ég verið hrifinn af konum í hælum. Ég fékk mér meira að segja helgarvinnu í skóbúð til að fullnægja þörfum mínum.
Þegar ég kynntist konunni minni var hún tilbúin að taka þátt í þessu og klæddist pinnahælum á meðan við sváfum saman eða leyfði mér að sleikja skóna hennar á meðan hún var í þeim. Eftirminnilegasta kynlífið okkar var þegar hún kom mér á óvart í háum stígvélum og engu öðru.“
Maðurinn segir að allt hafi verið frábært, þar til eiginkonan varð ólétt af dóttur þeirra.
„Hún fékk slæma grindarverki og var ráðlagt af ljósmóður að klæðast ekki hælum. Ég var miður mín en reyndi að bæla niður hvatir mínar, en það gekk ekki. Ég var að stara á fætur kvenna í lestinni og fróaði mér yfir skósafni eiginkonunnar.
Eitt kvöldið googlaði ég „skóblæti“ og fann webcam-klámsíðu sem er sérstaklega fyrir menn eins og mig. Þar voru webcam fyrirsætur, klæddar í háa pinnahæla og ekkert annað, og tilbúnar að spjalla gegn gjaldi.
Ég varð fljótt húkt. Ég varði löngum stundum fyrir framan tölvuna að fróa mér á meðan konan mín svaf. Hún hætti að vilja stunda kynlíf með mér en það var í lagi mín vegna, ég fílaði frekar þessa síðu, sérstaklega þegar ég sá að ein fyrirsætan var mín fullkomna kona; smágerð, dökkhærð og aðeins klædd í háa hæla.
Ég byrjaði að nota pening úr barnasjóðnum okkar til að borga fyrir samtöl mín og þessarar konu. En auðvitað fór þetta úrskeiðis. Eftir að dóttir mín fæddist kom konan mín að mér eitt kvöldið. Ég viðurkenndi allt og þá hafði ég eytt um 600 þúsund krónum af sparifénu okkar.
Nú vill eiginkonan mín að ég velji á milli hennar eða síðunnar. Ég vildi óska þess að valið væri svona auðvelt, en það er það ekki.“
„Skóblæti er algengt og svona webcam-síður, eins og allt klám á netinu, eru hannaðar til að vera ávanabindandi.
Þessar konur hafa engan áhuga á þér, bara veskinu þínu. Það er erfitt að koma sér úr þessu en það gæti hjálpað að tala við ráðgjafa eða sálfræðing.“