
Arsenal er á fullu að reyna að sannfæra Kenan Yildiz um að ganga til liðs við sig frá Juventus, ef marka má ítalska miðla.
Sóknarmaðurinn ungi hefur verið orðaður við önnur stórlið undanfarið, ekki síst Arsenal. Enska félagið er sagt hafa sett sig í samband við fulltrúa Yildiz nýlega til að ræða launakröfur og fleira í þeim dúr.
Tyrkinn er þó á sama tíma í viðræðum við Juventus um nýjan samning, en hann vill verða með launahærri leikmönnum félagsins. Juventus er sagt til í að þrefalda laun hans en hann vill sjá það gera enn betur.
Núgildandi samningur rennur ekki út fyrr en 2029, en Arsenal fylgist allavega grannt með stöðu mála og samningsviðræðum Yildiz við Juventus.
Yildiz hefur skorað fimm mörk og lagt upp jafnmörg í öllum keppnum það sem af er leiktíð.