

Töluverð umræða hefur verið um miðaverðið á tónleika Bubba Morthens í Laugardalshöll í sumar en dýrustu miðarnir kosta hátt í 40 þúsund krónur. Engu að síður hafa miðarnir selst hratt upp og aukatónleikum bætt við.
Tónleikarnir fara fram þann 6. júní árið 2026 og eru að einhverju leyti vísun í goðsagnakennda tónleika sem fóru fram á sama stað þann 6. júní árið 2006 (eða 6.6.6).
Miðaverðið hefur verið talsvert í umræðunni á samfélagsmiðlum, meðal annars í umræðugrúbbum á Facebook og á Reddit. Verðflokkarnir eru nokkrir. Miðar í stæði kosta tæpar 15 þúsund krónur en miðar í sæti frá tæpum 18 þúsund krónum í tæpar 40 þúsund krónur. En dýrustu sætin eru kölluð platinum sæti.
„Ég veit að Bubbi er ákveðin goðsögn er varðar tónlistarsenuna hér á Íslandi en hvaða bilaða dæmi er í gangi hérna? Þetta eru tónleikarnir sem hann heldur næsta sumar. Þetta er svipað miðaverð og var á The Smashing Pumpkins,“ segir einn netverji á Reddit. En miðaðverðið á þeim tónleikum fór hátt í 50 þúsund krónur. Einnig er bent á að dýrustu miðarnir á tónleika Laufeyjar í mars eru á um 50 þúsund krónur.
Ber hann þetta þó saman við miðaverð nokkurra annarra nýlegra tónleika á Íslandi, það er Manowar í Silfurbergi tæpar 13 þúsund krónur, In Flames í sama sal tæpar 14 þúsund og Sepultura í Valsheimilinu tæpar 13 þúsund krónur. Allt voru þetta innfluttar hljómsveitir sem hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum áratugum.

„Þetta er algjört brjálæði fyrir listamann sem þarf ekki að: Fljúga til og frá landinu. Sjá fyrir hóteli. Sjá fyrir keyrslu, mat og öðru uppihaldi,“ segir einn.
„Bubba langar í nýjan Range Rover,“ segir annar.
Aðrir koma tónleikahöldurum til varnar. Segja þetta miðaverð ummerki um breyttan veruleika tónlistarfólks.
„Þetta er vegna þess að listamenn græða ekki á plötusölu lengur og Spotify borgar ca 40 aura per spilun. Tónleikahald er í raun eina tekjulind tónlistarmanna,“ segir einn.
Annar bendir á markaðslögmálið.
„Ég hef aldrei alveg fattað að kvarta yfir miðaverði á tónleika, mér finnst þetta vera eitt einfaldasta dæmi um framboð og eftirspurn – of dýrt? Ekki kaupa. Aðrir kaupa? Greinilega ekki of dýrt,“ segir hann.
Greinilega hefur hinn síðastnefndi eitthvað til síns máls því að miðarnir seldustu upp eins og heitar lummur. Hefur verið blásið til aukatónleika þann 5. júní til að mæta eftirspurninni.