

Myndin var birt á Instagram-síðu þeirra hjóna og hefur fengið yfir 630 þúsund „likes“ á hálfum sólarhring.

Myndin var tekin fyrir hátíðarkvöldverð í Windsoe kastala í gærkvöldi.
Katrín klæddist einnig stærstu kórónunni sinni til þessa, Oriental Circlet-kórónu sem var í eigu Viktoríu drottningar.
Þetta var í fyrsta skipti sem hún bar þetta sögulega höfuðskraut en hingað til hefur prinsessan kosið látlausari kórónur.