

„Oft þegar ég fer á bar og fólk heyrir að ég sé kynlífsráðgjafi þá spyr það: Hversu oft ættu pör að stunda kynlíf á viku? Og það bíður alltaf spennt eftir svari, allir bíða eftir þessari tölu til að vita hvort að þeir séu sjálfir að stunda kynlíf „eðlilega“ oft,“ segir Charlene.
„Einu sinni í viku er meðaltalið í flestum samböndum. Auðvitað spilar alls konar inn í sem getur haft áhrif, stress, fjármál og alls konar annað getur haft áhrif á kynlífstíðni para.“
Charlene segir að sambandið sé alls ekki dauðadæmt ef pör eru ekki að stunda kynlíf en hún mælir með að fólk tali saman opinskátt um kynlíf og væntingar ef kynlíf er eitthvað sem skiptir það máli.
@lad Charlene answers your questions… 🗳️ #advice #therapist #health ♬ original sound – LADbible TV