fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fókus

Brotnaði niður þegar hún sá skilaboðin sem sessunautur hennar skrifaði um hana

Fókus
Fimmtudaginn 4. desember 2025 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem ferðaðist með bandaríska flugfélaginu Delta Airlines á dögunum segist hafa „grátið inni í sér“ þegar hún rak óvart augun í skilaboð sem sessunautur hennar sendi.

Konan, sem heitir Vanessa, birti myndband á TikTok sem vakið hefur gríðarlega athygli síðustu daga, en í skilaboðunum skrifaði sessunautur hennar um holdafar hennar.

„Ugh, RISASTÓR kona í sætinu við hliðina á mér,“ segir Vanessa að maðurinn hafi sent ónefndum aðila.

Vanessa var á leið frá Tampa til New York og segir hún að vélin hafi verið nýfarin í loftið þegar hún rak augun í skilaboðin.

„Við erum nýfarin af stað og ég get ekki hætt að gráta,“ skrifaði hún við myndbandið áður en hún fór yfir skilaboðin sem hún rak augun í. „Núna mun mér líða eins og fanga næstu tvo klukkutímana,“ sagði hún.

„Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ef þú nennir, geturðu sent mér smá ást? Ég hef lést um tæp 30 kíló og að undanförnu hefur mér bara liðið býsna vel með sjálfa mig,“ sagði hún.

Í öðru myndbandi sem Vanessa birti, sem tekið var upp síðar í ferðinni, var hún enn með tárin í augunum.

Í viðtali við The Mary Sue, sem New York Post, vísar til segir Vanessa að augu hennar og sessunautarins hafi mæst þegar hún kom að sætinu sínu. „Ég sá hann bókstaflega ranghvolfa augunum. Þá fóru viðvörunarbjöllurnar í gang hjá mér,“ segir hún.

Vanessa segir að hún sé ekki það „stór“ að hún þurfi tvö sæti og raunar hafi það verið þannig að umræddur maður hafi frekar farið yfir á hennar svæði, ef eitthvað er. Hann hafi hreint ekki verið tággrannur sjálfur.

Vanessa birti svo annað myndband á dögunum þar sem hún þakkaði fyrir allan þann stuðning sem hún hefur fengið. Segist hún aftur hafa öðlast trú á mannkynið.

@soberspouse♬ original sound – DJ Rehab

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short