

Um var að ræða góðgerðarviðburð sem rappararnir Diddy og Heavy D skipulögðu, en gríðarlegur troðningur myndaðist í salnum með fyrrgreindum afleiðingum.
Í heimildarmyndinni Sean Combs: The Reckoning, sem frumsýnd var á Netflix í gær, er rætt við meðstofnanda Bad Boy Records, Kirk Burrowes, þar sem hann lýsir samskiptum Diddy og móður hans eftir atvikið.
Diddy og Burrowes voru æskuvinir og rifjaði hann upp í þættinum þegar hann var staddur í hótelherbergi með Diddy og móður hans, Janice Combs, á Manhattan þar sem atvikið kom til tals. Á þessum tíma var Diddy nýhættur í skóla til að einblína að fullu á tónlistarferilinn.
„Hann vissi ekki hvað myndi gerast,“ sagði Burrowes í þættinum. „Og ég sá Janice spyrja Sean út í þetta. Hann er að fara inn í þessa tónlistardæmi. Hann er nýhættur í skóla og nú hefur þessi gífurlegi harmleikur átt sér stað. Hún var að velta fyrir sér: „Tók hann rétta ákvörðun?,“ sagði hann en Janice virðist hafa verið efins um að það hafi rétt hjá syni hennar að hætta í skóla.
„Og ég sá hann leggja hendur á hana,“ fullyrti hann. „Kalla hana tík og slá hana,“ sagði hann. Í þættinum er tekið fram að Diddy hafi ekki svarað fyrirspurn kvikmyndagerðarmannanna um það hvort hann hafi beitt móður sína ofbeldi.
Mörg ár eru liðin síðan það slitnaði upp úr vinskap Diddy og Burrowes, en Burrowes sakaði hann um ofbeldi, líkamlegt og andlegt, fjársvik og kúgunartilburði.