

„Það er þessi þörf að kaupa eitthvað, þetta þarf ekki að vera eitthvað merkilegt,“ sagði hún.
„Um leið og þú ýtir á borga, þá er svona hæsta hæðin búin, það er ekki að sækja heldur þegar þú borgar,“ sagði hún og bætti við að á undan því sé kvíði og stress.
„Jú, guð minn góður,“ sagði hún aðspurð hvort það komi stundum eftirsjá eftir kaup. Hún sagði að það fylgi þessu gjarnan mikil skömm og hún hafi oft falið hluti fyrir manninum sínum.
„Ég veit ekki hversu oft ég reif miða og henti í ruslið og faldi [hluti] inni í Cheerios-kassa,“ sagði Bergþóra.
Bergþóra sagðist alltaf hafa verið svona og nefndi atvik úr æsku sem markaði upphafið.
„Ég missti pabba minn þegar ég var að verða sjö ára. Þetta var mjög erfiður tími og þegar við vorum upp á okkar versta sagði mamma: „Jæja, förum inn í Kringlu.“ Þá fékk ég föt og bróðir minn tölvuleik. Þettta var okkar leið til að komast í gegnum þessa verstu tíma. Ég myndi alveg segja að þetta hafi líklega byrjað þar. Svo er ég líka með ADHD og það kveikir alveg eld undir svona,“ sagði hún.
Bergþóra sagði að það sé lengra síðan hún gerði sér grein fyrir vandanum en hún viðurkenndi hann loksins fyrir um ári síðan. Hún setti sig sjálfa í þriggja mánaða kaupbann í kjölfarið.
„Þetta er talið svolítið fyndið og við hlæjum öll að þessu, en ég man alveg eftir tímapunkti þar sem ég fór inn í Krónu, snyrtivörudeildin þar er orðin svo stór, og ég ætlaði ekki að labba inn í hana. Ég man ég fékk mjög óþægilega tilfinningu að fara ekki inn í deildina og sjá hvað væri í boði. Ég hugsaði með mér: „Vá, ég er miklu veikari en ég hélt.““
Hún hefur verið að tækla vandann sjálf. „Ég hætti að drekka fyrir sjö árum, þannig ég er með fullt af tólum og tækjum til að tækla svona. En þetta er allt öðruvísi því þegar þú hættir að drekka þá bara hættirðu að drekka, en ég er ekki hætt að kaupa,“ sagði Bergþóra.
Bergþóra opnaði sig um baráttu sína við kaupfíkn á samfélagsmiðlum og viðbrögðin leyndu sér ekki. Hún er alls ekki sú eina sem er að glíma við sama vanda. „Þegar ég opnaði mig voru svo margir sem tengdu við þetta,“ sagði hún.
Hún ræddi þetta nánar í Bítinu á Bylgjunni. Hlustaðu á viðtalið á Vísi.