

Hún líkti Brad við Trölla (e. Grinch) í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Goop, og sagði að hún væri þess vegna stundum smá einmana um hátíðarnar.
„Ég elska skreytingarnar, ég elska jólaplöptu Frank Sinatra. Ég kemst í mikið jólastuð,“ sagði hún.
„En Brad er hræðilegur. Hann hatar jólatónlist, hann hatar jólaskraut, kalkún og jólamat.“
Aðspurð hvort það sé eitthvað sem hann sé spenntur fyrir sagði hún: „Hann er spenntur fyrir að jólin séu búin.“
Leikkonan sagðist sem betur fer ekki vera sú eina í fjölskyldunni sem er spennt, börnin eru eins og hún.
Gwyneth á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, breska tónlistarmanninum Chris Martin, Apple, 21 árs, og Moses, 19 ára. Brad á tvö börn úr fyrra sambandi, Isabellu, 21 árs, og Brody, 18 ára.
„Ég upplifi mig einmana á heimilinu þegar kemur að jólunum, en börnin elska það, þau eru með mér í liði,“ sagði hún.