fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
433Sport

Fyrrum liðsfélagi Carragher lýsir ósætti við hann á samfélagsmiðlum eftir ummæli um helgina

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi varnarmaður Liverpool, Djimi Traore, hefur tekið upp hanskann fyrir Ibrahima Konate eftir að Jamie Carragher gagnrýndi Frakkann í kjölfar 3–0 taps Liverpool gegn Manchester City á sunnudag.

Carragher, sem nú starfar sem sérfræðingur hjá Sky Sports, tók Konate sérstaklega fyrir eftir fyrsta mark leiksins, þar sem Erling Haaland skoraði með skalla. Hann sagði varnarmanninn hafa verið í miklum vandræðum og að of oft væri við hann að sakast almennt þegar Liverpool fengi á sig mörk.

„Ég skil ekki hvað hann er að reyna að gera. Hann hoppar varla og reynir að flikka boltanum í stað þess að hreinsa hann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann bregst svona,“ sagði Carragher meðal annars.

Traore, sem lék með Carragher í sjö ár hjá Liverpool, brást við gagnrýninni á samfélagsmiðlum og tók fram að vandamálið væri ekki bundið við einn leikmann.

„Kæri vinur minn Carragher. Yfirleitt er ég sammála þér, en að þessu sinni er ég ósammála því að þú takir sérstaklega eftir frammistöðu Ibou Konate. Hann hefur verið einn besti miðvörður deildarinnar undanfarin ár. Allt liðið hefur verið að spila undir getu á þessari leiktíð,“ skrifaði hann á X.

Liverpool hefur nú tapað fimm deildarleikjum á tímabilinu og er átta stigum á eftir toppliði Arsenal. Nýir leikmenn liðsins hafa ekki náð að festa sig í sessi og lykilmenn, þar á meðal Konate, hafa átt erfitt uppdráttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir Víking reyna að losa Elías nokkrum mánuðum eftir komu hans

Segir Víking reyna að losa Elías nokkrum mánuðum eftir komu hans
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Í gær

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling