Shiraishi var hengdur í gærkvöldi en hann hlaut dauðadóminn árið 2020. Komst hann í kynni við fórnarlömb sín í gegnum samfélagsmiðilinn Twitter, sem nú heitir X, en morðin framdi hann á þriggja mánaða tímabili árið 2017.
Fórnarlömbin áttu það sameiginlegt að hafa átt við andleg veikindi að stríða og mun Takahiro hafa boðið fram aðstoð sína við að fremja sjálfsmorð.
Hann játaði morðin á sig en líkamsleifar fórnarlamba hans fundust meðal annars í kæliboxum í íbúð hans.
Dómsmálaráðherra landsins, Keisuke Suzuki, sagðist hafa heimilað aftökuna eftir að hafa skoðað gögn málsins ítarlega. Aftakan á Takahiro er sú fyrsta í Japan frá árinu 2022, en þá var karlmaður tekinn af lífi fyrir að verða sjö að bana í hnífaárás í verslunarhverfi í Tókýó árið 2008.