„Katy og Orlando eru hætt saman en gera það í sátt,“ segir heimildarmaður blaðsins.
Sögusagnir um skilnað þeirra hafa verið á kreiki síðustu vikurnar og var fullyrt á dögunum að Katie myndi vilja bíða með að tilkynna hann opinberlega þar til tónleikaferðalagi hennar lýkur síðar á árinu.
Katy og Orlando eiga eina dóttur saman en þau kynntust árið 2016 og trúlofuðu sig árið 2019.
„Katie er vitanlega í smá uppnámi en henni er létt að þurfa ekki að fara í gegnum annan skilnað og allt sem honum fylgir. Hún hefur gert það áður og það var erfiður tími fyrir hana,“ segir heimildarmaðurinn en Katie var gift Russell Brand á árunum 2010 til 2012.