fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Liver King handtekinn eftir hótanir gegn Joe Rogan – Gæti átt 10 ára fangelsi yfir höfði sér

Fókus
Miðvikudaginn 25. júní 2025 14:30

Áhrifvaldurinn „Liver King “ ætlaði að jafna um Joe Rogan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski áhrifavaldurinn Brian Johnson, betur þekktur sem „Liver King“, hefur verið handtekinn í Texas eftir að hafa hótað hlaðvarpsstjörnunni Joe Rogan og freistað þess að ræða við hann „undir fjögur augu“. Handtakan kemur í kjölfar ógnandi myndskeiða þar sem Johnson sagðist ætla að „láta Rogan borga“ og lét ýmis ókvæðisorð falla um hlaðvarpsmógúlinn umdeilda.

Myndband,  sem fór sem eldur í sinu á Twitter og Instagram, sýnir Liver King handjárnaðan og leiddan að lögreglubíl. Hann var þá í vesti yfir hettupeysu og virtist illa til reika. Samkvæmt upplýsingum frá NBC-sjónvarpsstöðinni KXAN-TV í Texas var Johnson vistaður í gæsluvarðhaldi án möguleika á tryggingu að kvöldi þriðjudagsins.

Liver King, sem hefur byggt upp gríðarlegan fylgjendahóp á samfélagsmiðlum með áherslu sinni á hrátt kjöt, vöðva  og „primal“ lífsstíl, hefur síðan verið kærður fyrir  hryðjuverkaógn (e. terroristic threat) gagnvart Rogan.

Rogan og Johnson hafa átt í opinberum deilum síðan árið 2022 í kjölfar þess að tölvupóstum var lekið sem sýndu fram á að Johnson eyddi tugþúsundum dollara í stera, eitthvað sem rímaði illa við ímynd hans sem fulltrúi náttúrulegs lífsstíls og mataræðis sem byggðist aðallega á hráu kjöti og innmat.

Rogan fjallaði um tölvupóstanna í þætti sínum og sagði að innihald þeirra kæmi honum ekki beint á óvart. Það væri „óhugsandi að líta svona út á fertugsaldri án utanaðkomandi aðstoðar“ og kallaði Liver King „fáránlegt vöðvabúnt“. Í kjölfar þess var Liver King gagnrýndur víða fyrir blekkingar  gagnvart fylgjendum sínum.

Hvorki Liver King né Rogan hafa tjáð sig um málið en sá fyrrnefndi gæti átt yfir sér allt að 10 ára fangelsisrefsingu vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“
Fókus
Í gær

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ