Sigríður Jóhannsdóttir, 56 ára Kópavogsbúi sem leitað hefur verið að frá því um síðustu helgi, fannst heil á húfi skömmu eftir hádegi og var hún færð á slysadeild til aðhlynningar.
Eins og greint var frá í tilkynningu lögreglunnar í gær hafði leitarsvæðið verið stækkað og í dag lögðu leitarflokkar björgunarsveitanna áherslu á Elliðaárdal/Elliðaár og austurhluta borgarinnar og fannst Sigríður á því svæði.
Öllum sem tóku þátt í leitinni að Sigríði er þakkað kærlega fyrir aðstoðina, ekki síst björgunarsveitunum okkar sem vinna ómetanlegt starf árið um kring, segir í tilkynningu lögreglunnar.