„Við erum nýkomin heim úr ferðinni okkar og yfir mig hafa rignt tölvupóstar frá bílaleigunni vegna ógreiddra bílastæða,“ sagði málshefjandi.
„Á nokkrum stöðum á ferðalaginu lögðum við bílnum, en sáum svo að fossinn eða útsýnisstaðurinn var of langt í burtu til að við gætum gengið að honum. Við settumst því aftur upp í bílinn og ókum í burtu án þess að greiða fyrir stæðið,“ segir viðkomandi og spyr hvort það borgi sig að reyna að kæra þetta eða ekki. Spyr viðkomandi hvort einhver hafi reynslu af þessu en um var að ræða alls fjórar sektir. „Þetta eru umtalsverðar upphæðir, 4 til 5 sinnum hærri en bílastæðagjaldið hefði verið.“
Hátt í 200 athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna og virðast ýmsir kannast við þessar lýsingar.
„Sama gerðist hjá okkur í síðustu viku. Við þurftum að greiða þegar við skiluðum bílaleigubílnum. Með umsýslugjöldum kostaði það 37 evrur fyrir bílastæði sem við ókum bara í gegnum. Ég skrifaði bréf til Ferðamálastofu og einnig til Guide to Iceland, sem hjálpuðu okkur við að skipuleggja ferðina,“ segir ein kona og bætir við að hópurinn sem hún ferðaðist með hafi vitað að stæðin væru vöktuð með myndavélum. Furðar hún sig á því að hafa fengið rukkun fyrir það eitt að aka um á bílastæðinu en ekki leggja bílnum. „Hreint peningaplokk,“ segir hún.
„Ég ók einu sinni inn á bílastæði í Reykjavík þar sem maður þurfti að borga til að komast út. Ég ýtti á bjölluna og sagði þeim að ég hefði ekki lagt – bara ekið inn og svo strax út. Þeir skoðuðu myndavélaupptökurnar og hleyptu mér út án þess að rukka. Þannig að það skaðar ekki að prófa að senda þeim tölvupóst og biðja þá um að skoða upptökurnar til staðfestingar. Þetta eru miklir peningar fyrir að leggja ekki einu sinni bílnum,” segir annar.
„Takk fyrir að minnast á þetta! Við erum nýkomin heim frá Íslandi og lentum í sama vandamáli,” segir kanadískur ferðamaður, kona, sem kveðst ekki hafa áttað sig á því strax að greiða þyrfti fyrir bílastæði á nær öllum ferðamannastöðum; fossum, gönguleiðum og svo framvegis.
„Við vorum aðeins í 3 daga þannig að við getum ímyndað okkur að þetta geti orðið dýrt til lengri tíma litið. Við ákváðum að sleppa nokkrum stöðum þar sem okkur fannst það ekki þess virði að greiða fyrir 5 mínútna heimsókn. (Við erum frá Kanada og gengi gjaldmiðilsins okkar er því miður mjög lágt.) Við eyddum restinni af ferðinni dálítið áhyggjufull um hversu há sektin yrði og hvort við hefðum misst af fleiri stöðum þar sem þyrfti að greiða,” segir konan.
Neytendasamtökin greindu frá því í síðustu viku að þau hefðu fengið fjölda kvartana vegna bílastæðamála á undanförnum tveimur árum. Snúa þær nær alfarið að háum vangreiðslugjöldum sem geta numið frá 1.500 krónum til 7.500 krónum.
„Gjöldin eru oftast lögð á án fyrirfram tilkynningar og virðast langtum hærri en það tjón eða kostnaður sem þjónustuveitandi verður fyrir. Það vekur að mati Neytendasamtakanna upp áleitnar spurningar um hvort um sé að ræða tekjuöflun fremur en endurgreiðslu á raunverulegu tjóni eða kostnaði seljanda,“ sagði í tilkynningu sem Neytendasamtökin birtu á heimasíðu sinni.
Bentu þau einnig á að Neytendastofa hefði komist að þeirri niðurstöðu að fjögur fyrirtæki hafi brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti sem og reglum um verðmerkingar með því að veita ekki upplýsingar um öll gjöld tengd stæðunum. Taldi stofnunin afmörkun gjaldskyldra bílastæða ekki nægilega skýra auk þess sem viðskiptahættir væru villandi.