fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. júní 2025 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ljótu ruglukollarnir sem hafa tekið yfir Sósíalistaflokkinn og virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp.”

Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, um forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag.

„Nú er Karl Héðinn Kristjánsson aftur mættur í Moggann að ýja að því að eitthvað sé undarlegt við fjármál flokksins og ákvarðanir um ráðstöfun styrkja,” segir Gunnar Smári í Facebook-hópnum Rauði þráðurinn.

„Þetta er loðið“

Í frétt Morgunblaðsins, hvar fyrirsögnin er Kafað í fjármál flokksins, kemur fram að nýkjörin stjórn Sósíalistaflokksins kanni um þessar mundir fjármál flokksins frá fyrri tíð. Þá ekki síst fjárveitingar til óskyldra félaga á undanförnum árum.

Er bent á að opinberir styrkir til flokksins, ætlaðir starfsemi stjórnmálaflokka, hafi undanfarin ár runnið til Alþýðufélagsins og Samstöðvarinnar og að hálfu til Vorstjörnunnar.

Í fréttinni er haft eftir Karli, sem leiddi hallarbyltingu í flokknum á dögunum, að Gunnar Smári hafi ekki verið fús til að afhenda skrifleg gögn um lánveitingu flokksins til Samstöðvarinnar. „Þetta er loðið. Þegar þú innir hann eftir skriflegri samþykkt fyrir þessari lánveitingu þá er hún ekki til, svo við höfum séð,“ segir hann við blaðið.

Nú kannast þau ekki við neitt

Gunnar Smári vísar ásökunum Karls á bug í samtali við Morgunblaðið og það gerir hann einnig í Facebook-færslu sinni. Bendir hann á að á sameiginlegum fundi framkvæmda- og málefnastjórna Sósíalistaflokksins þann 1. ágúst 2021 hafi verið samþykkt „tilboð“ til kjósenda sem kallað var Burt með elítustjórnmál.

Í því hafi komið fram að styrkir til Sósíalistaflokksins yrðu ekki notaðir til að byggja upp flokkinn heldur Samstöðina og hreyfingar hinnar fátæku.

„Þá voru í þessum stjórnum fólk sem tilheyrir yfirtökuhópnum sem náði völdum á aðalfundi Sósíalistaflokksins og situr nú í framkvæmdastjórn flokksins, svo sem Sæþór Benjamín Randalsson, Hallfríður Þórarinsdóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Nú kannast þetta fólk ekki við neitt, vegna það hentar ekki rógsherferð þeirra gegn öllum þeim sem hafa byggt upp þennan flokk en er ekki í yfirtökuklíkunni,” segir hann.

Loforð til kjósenda

Hann segir að þetta tilboð hafi verið samþykkt á félagsfundi flokksins sem haldinn var í Tjarnarbíói þann 19. september þetta ár ásamt öðrum „tilboðum“ flokksins.

„Þetta voru loforð flokksins til kjósenda, sem greiddu þeim síðan atkvæði sitt. Og í raun er styrkurinn framlag þessara kjósenda, upphæð hans ræðst af fjölda kjósenda sem kusu flokkinn, stefnu hans og tilboð. Ákvörðunin var síðan endurnýjuð á félags- og aðalfundum þar sem þessi tilhögun var oft rædd og staðfest með samþykktum reikninga þar sem ráðstöfun styrkjafjár kom fram í ársreikningum sem samþykktir voru af félagsfólki. Nú síðast 24. maí síðastliðinn með atkvæðum yfirtökuhópsins sjálfs. Um þessa ákvörðun flokksins hefur margsinnis verið rætt opinberlega, hún er vel þekkt og öllum kunn sem vilja vita,“ segir Gunnar Smári meðal annars.

Endar hann grein sína á þessum orðum:

„Umfjöllun [um] fjármál flokksins ættu að snúast um hvort markmið yfirtökuhópsins sé að flokkurinn gangi á bak orða sinna og eyði styrknum í að greiða fólki í yfirtökuhópnum laun, svo þau séu á fullum launum við að eyðileggja þennan flokk. Þetta er meiriháttar breyting sem yfirtökuhópurinn hlýtur að leggja fyrir næsta aðalfund svo almennir félagar geti greitt um þetta atkvæði. Þangað til þessum ákvörðunum og loforðum hefur verið breytt eru þau í fullu gildi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump