Til harðra orðaskipta kom í dag á Alþingi í óundibúnum fyrirspurnatíma á milli Ingibjargar Davíðsdóttur þingmanns Miðflokksins og Kristrúnar Frostadóttir forsætisráðherra. Spurði Ingibjörg Kristrúnu fjölda spurninga meðal annars hvort hún hefði sjálf gripið inn í mál Oscars Bocanegra en stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt aðkomu Víðis Reynissonar þingmanns Samfylkingarinnar að því máli. Kristrún sagði að málið hefði ekkert verið rætt í ríkisstjórn en Ingibjörg og samflokksmaður hennar voru ósátt við svörin og kölluðu svo hátt fram í ræðuna að Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis neyddist til að grípa inn í.
Til stóð að að senda Oscar úr landi en hætt var við það eftir að Víðir, sem er formaður allsherjar- og menntamálanefndar, kom því á framfæri við Útlendingastofnun að mjög líklegt væri að Oscar myndi fá íslenskan ríkisborgararétt á Alþingi. Í síðari fyrirspurn sinni sagði Ingibjörg um málið:
„Það getur ekki talist eðlilegt að einstaklingar sem uppfylla ekki skilyrði til hælis og fá synjun um vernd frá tveimur stjórnsýslustigum geti leitað ásjár Alþingis og fengið vernd þannig, nánast með loforði um veitingu ríkisborgararéttar. Hér hefur verið opnað pandórubox með inngripi formanns allsherjarnefndar og jafnvel er talið að viðkomandi hafi brotið stjórnsýslulög með inngripi sínu. Hér er jafnræðis ekki gætt. Er þetta inngrip með stuðningi hæstvirts forsætisráðherra, formanns Jafnaðarmannaflokks Íslands? Ég tel að þjóðin og aðrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eigi rétt á svörum við því án undanbragða eða útúrsnúninga?“
Kristrún svaraði á eftirfarandi hátt:
„Þetta kemur ekki til umræðu í ríkisstjórn. Ákvörðun um ríkisborgararétt er tekin af Alþingi ekki framkvæmdarvaldinu. Þessi ákvörðun kom ekki til umræðu í ríkisstjórn. Það þarf ekki að vera samstaða eða óeining eða mismuandi skoðanir. Þetta varðar ekki ríkisstjórn.“
Heyrðist þá Ingibjörg kalla fram í ræðu Kristrúnar að hún hefði ekki verið að spyrja um það.
Kristrún hélt hins vegar ótrauð áfram:
„Það sem að ég hafði skoðun á hins vegar hvort að háttvirtur þingmaður Víðir Reynisson hefði lekið gögnum, brotið lög. Það tel ég ekki.“
Heyrðist þá Ingibjörg kalla fram í aftur.
„Það var ekki það sem ég spurði um.“
Kristrún hélt áfram:
„Það sem liggur alveg fyrir í þessu samhengi hér er að það hefur lengi verið veittur ríkisborgararéttur með þessum hætti.“
Heyrðist þá Ingibjörg kalla fram í enn hærra en í fyrri tvö skiptin og krefja Kristrúnu svara og Bergþór Ólason samflokksmaður Ingibjargar heyrðist kalla:
„Þetta er útúrsnúningur.“
Reis Þórunn þá úr sæti sínu og sló í bjöllu þingforseta og Kristrún gerði þá hlé á ræðu sinni. Beindi Þórunn eftirfarandi tilmælum til þingmannanna tveggja:
„Forsætisráðherra er með orðið. Ég bið þingmenn að gefa hljóð.“
Lauk Kristrún síðan máli sínu með því að vísa til fordæma:
„Það hefur lengi verið veittur ríkisborgararéttur með þessum hætti. Ef fólk hér inni kemst að þeirri niðurstöðu eftir þetta vor að það sé afleitt að ríkisborgararéttur sé veittur með þessum hætti þá þarf að taka ákvörðun um það í þessum sal. En það er hægt að fletta því upp, áraraðir aftur í tímann, þar sem fólk er að taka mynd af sér með fólki, sem hefur áður fengið synjun á öðrum stigum, eftir að hafa veitt þeim ríkisborgararétt hér inni. Við skulum ekki láta eins og þetta sé nýtilkomið. Höldum okkur við staðreyndir máls.“
Myndbönd af orðaskiptunum og inngripi þingforsetans má sjá hér fyrir neðan: